Mindfuck (2009-2010)
Leturtýpa sem ég vann út frá hugmyndafræði New Alphabet letursins eftir Wim Crouwel. Ég heillaðist af þessu frekar torskilda letri sem bauð upp á framúrstefnulega útfærslu á annars einföldum formum. Letur Crouwel var unnið í ferningslaga grindarkerfi en mitt er unnið í hringlaga grindarkerfi. Ef fólk á í einhverjum erfiðleikum með að lesa úr letrinu og þarf að pæla dálítið í því, þá hef ég náð fram mínu markmiði.